Verðhækkanir hjá Apple!
26.6.2026
Apple hækkar verð á fjölda vara
Samkvæmt nýjustu upplýsingum hefur Apple hækkað verð á fjölda vinsælla vara, þar á meðal MacBook tölvum, iPad spjaldtölvum, Apple TV og HomePod. Hækkanirnar eru mismiklar eftir vöruflokkum, allt frá um 6% og upp í rúmlega 50%, en meðalhækkunin er um 23%.
Mestu hækkanirnar virðast vera á Apple TV 4K, HomePod mini og Mac Studio, á meðan Vision Pro hækkar hlutfallslega minnst.
Munu þessar verðbreytingar án efa hafa áhrif á Evrópumarkað og Ísland, það má búast við að innkaupsverð og smásöluverð á Apple vörum taki breytingum á næstu dögum.
Apple vörurnar eru í stöðugri endurskoðun hjá okkur, ný verð munu skýrast á næstu dögum.
Sjá töflu að neðan með hækkunum í Bandaríkjunum.
Meðaltal yfir allar vörurnar: ≈ 22,7% hækkun
Mestar hækkanir
Apple TV 4K: 54,3%
Mac Studio (M3 Ultra): 32,5%
HomePod mini: 30,3%
iPad: 28,7%
iPad Air / Mac Studio (M4 Max): 25,0%