Apple

Apple MagSafe hleðslutæki 25 W - 1 m

8.990 kr.

Vörunúmer: MGD74ZM/A

Til á lager

Teya · kortagreiðslaApple PayNetgíróPEI

Hleðsla sem smellpassar

Apple MagSafe gerir þráðlausa hleðslu einfalda. Innbyggðir seglar halda hleðslufletinum á réttum stað á samhæfum iPhone og 1 metra USB-C snúran gefur þér þægilegt svigrúm við skrifborðið eða náttborðið.

Qi2 hleðsla allt að 25 W

Hleðslutækið er vottað fyrir Qi2 25W og Qi. Það styður allt að 25 W hleðslu á samhæfum símum þegar notaður er viðeigandi 30 W USB-C straumbreytir. Raunverulegt hleðsluafl fer eftir síma, straumbreyti og aðstæðum.

Fyrir iPhone og AirPods

MagSafe-segulfesting virkar með iPhone-gerðum sem styðja MagSafe. Qi-hleðsla er einnig í boði fyrir iPhone 8 og nýrri samhæfar gerðir og AirPods með þráðlausu hleðsluhulstri. Eldri gerðir hlaða með lægra afli.

Helstu upplýsingar

  • Allt að 25 W þráðlaus hleðsla á samhæfum tækjum.

  • Qi2 25W og Qi vottun.

  • Innbyggð 1 m ofin snúra með USB-C tengi.

  • MagSafe hleðsluflötur og snúra fylgja.

Straumbreytir fylgir ekki og er seldur sér.