Garmin

Garmin Approach S72 43 mm – Gyllt / Grátt

139.900 kr.

Vörunúmer: 010-04147-04

Uppselt

Láttu mig vita þegar varan kemur

Garmin Approach S72 43 mm – Gyllt / Grátt

Þú færð eina tilkynningu þegar varan kemur á lager og afskráist þá sjálfkrafa. Skráningin tekur ekki vöru frá.

Meiri yfirsýn á golfvellinum

Garmin Approach S72 er golfsnjallúr fyrir kylfinga sem vilja sameina yfirsýn yfir völlinn, innsýn í sveifluna og öfluga hversdagseiginleika. Þessi 43 mm útgáfa er í litnum gyllt / grátt með léttum títanramma, safírgleri og þægilegu ComfortFit-taubandi.

Upplýsingar sem styðja næsta högg

Skýr AMOLED-snertiskjár sýnir golfkort og fjarlægðir að flötum og hindrunum. Sýndarkylfusveinn og PlaysLike-fjarlægðir hjálpa við ákvarðanir á vellinum, en sveiflumælingar nýtast við að skoða handahraða, aftursveiflu og hreyfingu úlnliðs.

Golfið og dagurinn í sama úri

  • Yfir 43.000 forhlaðnir golfvellir

  • 1,3″ AMOLED · 416 × 416 myndpunktar

  • Allt að 10 daga rafhlöðuending í snjallúrsham

  • Fjölbands-GPS, landakort og LED-vasaljós

  • Svefnskráning, Body Battery og HRV-staða

  • Hátalari og hljóðnemi fyrir símtöl með tengdum síma

  • Garmin Pay, tónlistargeymsla og 5 ATM vatnsþol

Ítarlegir eiginleikar á borð við loftmyndir og púttgreiningu krefjast Garmin Golf-áskriftar. Lestur á flötum er aðeins í boði á völdum völlum og ekki á Íslandi. Tónlistarveitur geta krafist áskriftar. Rafhlöðuending fer eftir notkun og stillingum.