Hombli

Hombli kattaklósett

56.990 kr.

Vörunúmer: HBLB-0109

Uppselt

Láttu mig vita þegar varan kemur

Hombli kattaklósett

Þú færð eina tilkynningu þegar varan kemur á lager og afskráist þá sjálfkrafa. Skráningin tekur ekki vöru frá.

Hombli Smart Cat Litter Box er sjálfhreinsandi kattakassi með innbyggðri myndavél og snjallri vöktun. Kassinn hreinsar sandinn sjálfkrafa eftir notkun og safnar úrganginum í lokað hólf sem hjálpar til við að halda heimilinu hreinu og draga úr ólykt.

Helstu upplýsingar

  • Sjálfvirk þrif: Skynjarar greina þegar kötturinn fer inn og út úr kassanum. Hreinsunin hefst aðeins eftir að kötturinn er farinn og úrgangurinn færist í lokað 7 lítra hólf. Hægt er að stjórna þrifum og tímasetningum í Hombli appinu.
  • Myndavél með nætursjón: Innbyggð 2 MP Full HD myndavél sýnir 1080p mynd og er með innrauðri nætursjón. Fylgstu með kettinum í beinni eða vistaðu upptökur á MicroSD-korti, allt að 128 GB, eða í valfrjálsri skýjaþjónustu.
  • Fylgstu með venjum kattarins: Þyngdarskynjari skráir þyngd kattarins við hverja heimsókn. Appið heldur einnig utan um tíðni og lengd heimsókna svo auðveldara sé að fylgjast með breytingum á venjum hans.
  • Örugg og hljóðlát notkun: Skynjarar framan, aftan og undir tækinu koma í veg fyrir að kassinn fari af stað meðan kötturinn er inni eða nálægt. Hljóðlátur mótorinn mælist undir 45 dB og UV-ljós hjálpar til við að halda kassanum hreinum eftir notkun.
  • Sjálfvirk hreinsun eftir notkun
  • Innbyggð 2 MP 1080p myndavél
  • Innrauð nætursjón
  • Þyngdar- og notkunarskráning
  • 7 lítra úrgangshólf
  • Tekur allt að 2,5 kg af óhreinum kattasandi
  • Hentar köttum frá 1–10 kg
  • Styður flestar gerðir kekkjanlegs kattasands
  • UV-hreinsun og lyktarvörn
  • Hljóðstyrkur undir 45 dB
  • Tengist 2,4 og 5 GHz Wi-Fi
  • Styður MicroSD-kort allt að 128 GB
  • Virkar með Amazon Alexa og Google Home

Í pakkanum:

  • Hombli Smart Cat Litter Box með myndavél
  • Lyktareyðir
  • Rúlla með 15 ruslapokum
  • Tvöföld sandmotta
  • EU-straumbreytir
  • Notkunarleiðbeiningar