Lalarma

Lalarma Flash Light - Yellow

4.490 kr.

Vörunúmer: LALAR-FLASH-YELLOW

Uppselt

Láttu mig vita þegar varan kemur

Lalarma Flash Light - Yellow

Þú færð eina tilkynningu þegar varan kemur á lager og afskráist þá sjálfkrafa. Skráningin tekur ekki vöru frá.

Skemmtilegur félagi í útiveru, ævintýrum og leik — jafnt innan dyra sem utan.

Lalarma vasaljósið er létt og sérstaklega hannað fyrir litlar hendur. Það er framleitt úr endurunnu plasti og notar orkusparandi LED-tækni, án þess að slegið sé af birtu eða notagildi.

Auðvelt er að stilla birtustyrkinn eftir aðstæðum, hvort sem verið er að lesa í tjaldi, leita að fjársjóði eða kanna heiminn í myrkri. Ljósið getur einnig skipt um lit og lýsir þá í lit sem passar við vasaljósið.

Innbyggð minnisaðgerð man síðustu stillingu og endurhlaðanleg rafhlaðan veitir langvarandi notkun. Snúran er með opnanlegri festingu svo hægt er að hengja vasaljósið upp og nota það sem lítið ljós.

Helstu upplýsingar

  • Stillanlegur birtustyrkur
  • Litaskiptanlegt ljós
  • Innbyggð minnisaðgerð
  • Endurhlaðanleg rafhlaða
  • Orkusparandi LED-tækni
  • Framleitt úr endurunnu plasti
  • Létt og meðfærilegt fyrir litlar hendur
  • Opnanleg snúra til að hengja ljósið upp