LAUT

Laut NOVI Sleeve 11-14"

7.990 kr.

Vörunúmer: MIG-C403F167D82A6937

Til á lager

LAUT NOVI er stílhrein og sterkbyggð fartölvutaska sem verndar 14" fartölvuna þína við dagleg ferðalög. Vatnsfráhrindandi nælonefni þolir vel daglegt slit, en mjúkt flosfóðrað og bólstrað innra byrði ver tölvuna gegn rispum, höggum og hnjaski.

Hólfaður vasi að framan heldur hleðslutæki, síma, snúrum og öðrum nauðsynjum snyrtilega skipulögðum. Sérstakt hlífðarlag við rennilásinn kemur í veg fyrir að hann rispi tölvuna.

Innbyggt handfang og meðfylgjandi axlaról bjóða upp á tvo þægilega burðarmöguleika, hvort sem ferðinni er heitið í vinnuna, skólann eða á fund.

Helstu upplýsingar

  • Hentar fyrir allt að 14" fartölvur
  • Sterkbyggt og vatnsfráhrindandi nælonefni
  • Mjúkt flosfóður að innan
  • Bólstrun úr svampi ver gegn höggum
  • Hlífðarlag við rennilás kemur í veg fyrir rispur
  • Hólfaður vasi fyrir hleðslutæki og fylgihluti
  • Þægilegt handfang að ofan
  • Meðfylgjandi axlaról
  • Málmhringir fyrir örugga festingu ólar
  • Litur: Svartur
  • Stærð: 347 × 237 × 42 mm