Soundboks

Soundboks Rider

99.990 kr.

Vörunúmer: 11-SBRID_B

Til á lager

SOUNDBOKS Rider sameinar kraftmikinn partýhljóm og meðfærilega hönnun. Þrátt fyrir nett snið nær hátalarinn allt að 118 dB hljóðstyrk og skilar skýrum hljómi með kröftugum bassa – hvort sem ferðinni er heitið í garðinn, útileguna eða næsta partý.

Innbyggt handfang og aðeins 6,5 kg þyngd gera Rider auðveldan í flutningi. Sterkbyggt húsið, höggdeyfandi sílikonhornin og IP66-vörn gegn ryki og vatni gera hátalarann vel undirbúinn fyrir íslenskt veður og fjörugt ferðalag.

Útskiptanlega SOUNDBOKS rafhlaðan endist í allt að 35 klukkustundir við miðlungsstyrk eða allt að 8 klukkustundir í botni. Í SOUNDBOKS appinu má velja á milli Bass+, Outdoor og Indoor hljóðstillinga, stilla tónjafnara og vista eigin hljóðprófíla.

Helstu upplýsingar

  • Allt að 118 dB hljóðstyrkur
  • 8" bassakeila og 1,2" diskant
  • Tíðnisvið: 40 Hz–20 kHz
  • Soundboks Adaptive Bass Enhancer DSP
  • Tvöfaldir Class-D magnarar frá Texas Instruments
  • Þrjár hljóðstillingar: Bass+, Outdoor og Indoor
  • Sérstillanlegur tónjafnari í SOUNDBOKS appinu
  • Bluetooth 4.2
  • 3,5 mm AUX-tengi
  • Allt að 35 klst. rafhlöðuending við miðlungsstyrk
  • Allt að 8 klst. rafhlöðuending á hámarksstyrk
  • Útskiptanleg 99,84 Wh LiFePO4 rafhlaða fylgir
  • Full hleðsla á um tveimur klukkustundum með The Charger
  • IP66 ryk- og vatnsvörn
  • Höggdeyfandi sílikonhorn
  • Laustakanlegt stálgrill
  • Innbyggt burðarhandfang
  • Festing fyrir aukabúnað og burðaról
  • Stærð: 35 × 24 × 20 cm
  • Þyngd: 6,5 kg

Aflgjafi fylgir ekki og SOUNDBOKS The Charger er seldur sér.