Apple kynning "Awe dropping"

Nýjasta kynningin frá Apple - iPhone 17 og iPhone Air

Apple kynnti nýjustu vörurnar sínar þann 9. september 2025 á „Awe Dropping“ viðburðinum. Þar komu fram nýir iPhone 17 og iPhone Air símar, ný AirPods Pro og Apple Watch Series 11, Apple Watch Ultra 3 og Apple Watch SE3.

iPhone 17 - hraði, hönnun og betri myndir

Nýi iPhone 17 er hannaður með stóran 6,3" Super Retina XDR skjá með ProMotion sem gerir notendaupplifunina silkimjúka. Hann er með nýjan A19 örgjörva sem skilar meiri hraða og betri rafhlöðuendingu.

Aðallinsan styður tvöfaldan aðdrátt, víðlinsan nær bæði stórum sjónarhornum og nákvæmum nærmyndum, og ný frammyndavél aðlagar sig sjálf að hópmyndum og gerir kleift að taka upp bæði fram- og afturlinsu á sama tíma.

Síminn kemur í fimm litum – svörtum, lavender, mist blue, sage og hvítum – og byrjar á 256GB geymslurými. 

iPhone Air - Sá þynnsti hingað til

Nýjungin sem vakti hvað mesta athygli er iPhone Air, aðeins 5,6 mm þunnur og með grind úr títan. Hann leggur áherslu á léttleika og þægindi, þó að hann hafi aðeins eina myndavél í stað þriggja þá getur hann vel tekið flottar myndir.

Þetta er sími fyrir þá sem vilja iPhone með allra þynnstu og léttustu hönnuninni án þess að fórna góðum skjá og afköstum.

iPhone 17 Pro - Meiri kraftur og betri myndir

iPhone 17 Pro er með nýja A19 Pro örgjörva sem tryggir hraðari afköst og lengri rafhlöðuendingu. Þriggja linsu myndavélakerfið tekur 48MP myndir með ótrúlegum smáatriðum, bæði í ljósum og dimmum aðstæðum. Nýr Super Retina XDR skjár með ProMotion gerir allt notendaviðmót fljótlegra og mýkra en áður.

iPhone 17 Pro Max - Efstur í iPhone keðjunni

iPhone 17 Pro Max sameinar nýjustu tækni Apple í stærra formi. Hann býður upp á A19 Pro örgjörva, 6,9" Super Retina XDR skjá og öflugt myndavélakerfi með lengri aðdrætti og betri stöðugleika fyrir ljósmyndun og myndbandsupptökur. Með enn stærri rafhlöðu er þetta símann sem fylgir þér allan daginn, og jafnvel lengur.

AirPods Pro 3 - Betri hljóðupplifun og rauntímaþýðingar

AirPods Pro 3 koma með bættri hljóðeinangrun, rauntíma þýðingum sem nýtast í samtölum og nýjum hjartsláttarmæli. Rafhlöðuendingin er nú allt að 8 klst á einni hleðslu. Frábært fyrir daginn í heild sinni.

Apple Watch Series 11 - Meira fyrir heilsuna

Nýja Series 11 kemur með háþrýstimæli, betri heilsufarsmælingum, 5G tengingu og jafnvel möguleika á gervihnattasamskiptum í Ultra og SE útgáfum. Rafhlöðuendingin hefur líka verið lengd svo úrið fylgir þér lengur í gegnum daginn.

Apple Watch Ultra 3 - Úrið fyrir ævintýrin

Ultra 3 er smíðað úr sterkum títan málmi með bjartari skjá og lengri rafhlöðuendingu. Það býður upp á nákvæmari heilsumælingar, þar á meðal blóðþrýsting, og nú einnig gervihnattatengingu fyrir samband þar sem símasamband næst ekki. Fullkomið úr fyrir þá sem vilja bæði styrk og nýjustu tækni í úri sem fylgir þeim hvar sem er.

Viljir þú vita meira, ekki hika við að hafa samband við okkur í netspjallinu eða í tölvupósti á vefverslun@lune.is