Nýjar Apple vörur - Mars 2026

Nýjar Apple vörur 2026 - iPhone 17e, MacBook M5 og fleiri nýjungar

Apple kynnti fjölda nýrra vara í vikunni og uppfærði bæði iPhone, iPad og Mac línuna. Meðal nýjunga eru iPhone 17e, iPad Air með M4, MacBook Air með M5, MacBook Pro með M5 Pro og M5 Max, ný MacBook Neo fartölva og uppfærður Studio Display skjár.

Þessar nýju vörur sýna að Apple heldur áfram að þróa bæði öflugri tæki fyrir atvinnunotkun og hagkvæmari tæki fyrir daglega notkun.

Hér eru helstu Apple vörurnar sem voru kynntar í þessari viku.


iPhone 17e

Apple kynnti nýjan iPhone 17e, sem er hagkvæmari viðbót í iPhone línuna en býður samt upp á marga af helstu eiginleikum nýjustu kynslóðarinnar.

Helstu nýjungar:

• A19 örgjörvi sem skilar meiri hraða og betri afköstum
• 48 MP myndavél með 2x zoom
• MagSafe stuðningur og hraðari þráðlaus hleðsla
• 256 GB geymsla sem grunnstærð

iPhone 17e er sérstaklega hugsaður fyrir þá sem vilja nýjan iPhone á lægra verði.


iPad Air með M4

Apple uppfærði einnig iPad Air, sem kemur nú með öflugri M4 örgjörva.

Helstu atriði:

• Apple M4 örgjörvi með mun meiri afköstum
• betri AI vinnsla og hraðari grafík
• Wi-Fi 7 stuðningur
• fáanlegur í 11" og 13" stærðum

Nýi iPad Air færir spjaldtölvuna nær iPad Pro í afköstum og hentar vel fyrir bæði vinnu og afþreyingu.


MacBook Air með M5

MacBook Air fær nú nýja kynslóð með Apple M5 örgjörva.

Helstu breytingar:

• meiri hraði og betri AI vinnsla
• hraðari SSD geymsla
• Wi-Fi 7 og Bluetooth 6
• allt að 4 TB geymsla

MacBook Air er áfram ein vinsælasta fartölva Apple fyrir vinnu, nám og daglega notkun.


MacBook Pro með M5 Pro og M5 Max

Apple kynnti einnig nýja MacBook Pro 14" og 16" með M5 Pro og M5 Max örgjörvum.

Helstu eiginleikar:

• allt að 40 kjarna GPU
• allt að 128 GB vinnsluminni
• verulega hröð AI og 3D vinnsla
• Liquid Retina XDR skjár

Þetta eru öflugustu MacBook Pro fartölvur Apple hingað til, sérstaklega fyrir hönnuði, myndvinnslu og önnur krefjandi verkefni.


Studio Display - Apple skjár fyrir Mac

Apple kynnti einnig Studio Display, hágæða skjá sem er hannaður til að vinna fullkomlega með Mac tölvum.

Helstu eiginleikar:

• 27" 5K Retina skjár
• True Tone og breitt P3 litróf
• 12 MP Ultra Wide myndavél með Center Stage
• sex hátalara hljóðkerfi með Spatial Audio
• Thunderbolt tenging fyrir Mac

Studio Display er sérstaklega hentugur fyrir hönnuði, ljósmyndara og fyrir myndvinnslu þar sem nákvæmni lita skiptir miklu máli.


MacBook Neo - ný og hagkvæm MacBook

Kannski stærsta nýjungin er MacBook Neo, ný fartölvulína sem er hugsuð sem ódýr inngangur í Mac heiminn.

Helstu atriði:

• Verð frá 119.990 kr.
• A18 Pro örgjörvi
• 13" Liquid Retina skjár
• allt að 16 klst rafhlöðuending

MacBook Neo er ódýrasta MacBook tölvan sem Apple hefur gefið út og miðar sérstaklega að nemendum og almennum notendum sem ekki eru að fara smíða geimflaugar..


Stóra myndin

Það sem stendur upp úr í kynningum vikunnar er að Apple er að víkka vörulínuna bæði upp og niður í verði.

• hagkvæmari tæki eins og iPhone 17e og MacBook Neo
• öflugri fartölvur með M5 örgjörvum
• meiri áhersla á AI og vinnslugetu
• betri skjálausnir fyrir vinnustöðvar með Studio Display

Apple virðist því vera að styrkja allt vistkerfið sitt - frá einföldum tækjum til öflugra atvinnutækja.