Samsung Galaxy S26 línan er komin. Öflugri, snjallari og tilbúin fyrir framtíðina

Samsung hefur kynnt nýjustu kynslóð Galaxy tækja og það er ljóst að hér er ekki bara um hefðbundna uppfærslu að ræða. Nýja Galaxy S26 línan og Galaxy Buds4 heyrnartólin sameina hámarks afköst, betri myndavélar og enn öflugri gervigreind sem gerir daglega notkun einfaldari og skilvirkari.

Ef þú ert að leita að síma sem endist lengi, tekur frábærar myndir og heldur í við þig í vinnu og afþreyingu, þá er Galaxy S26 línan svarið.


Galaxy S26 - jafnvægið sem flestir vilja

Galaxy S26 er nettur og kraftmikill sími með skýrum AMOLED 120Hz skjá og öflugum örgjörva sem sér um allt frá samfélagsmiðlum til leikja án vandræða.

Þríhliða 50MP myndavélakerfi tryggir skýrar myndir við allar aðstæður og Galaxy AI aðstoðar við myndvinnslu, leit og daglegt skipulag. Þetta er fullkominn sími fyrir þá sem vilja flaggskipsupplifun í handhægri stærð.


Galaxy S26+ - stærri skjár, meiri upplifun

Viltu meira skjápláss fyrir streymi, vinnu eða leiki? Þá er Galaxy S26+ rétta valið.

Með stærri 6,7 tommu AMOLED skjá og sterkri rafhlöðu færðu enn betri afþreyingarupplifun og lengri notkunartíma. Afköstin eru í hæsta gæðaflokki og gervigreindin hjálpar þér að spara tíma í daglegum verkefnum.


Galaxy S26 Ultra - flaggskipið fyrir þá kröfuhörðustu

Galaxy S26 Ultra er öflugasti síminn í línunni og hannaður fyrir þá sem vilja einfaldlega það besta.

200MP aðalmyndavél sem fangar ótrúleg smáatriði
Innbyggður S Pen fyrir nákvæma vinnu og sköpun
Hámarksafköst fyrir myndvinnslu, myndbandsupptöku og leiki
Sérstök skjástilling sem eykur persónuvernd(privacy filter) í almenningsrýmum

Þetta er sími fyrir skapandi notendur, fagfólk og alla sem vilja bestu mögulegu Android upplifun á markaðnum.


Galaxy Buds4 og Buds4 Pro – hljóð sem fylgir þér

Samhliða símunum kynnti Samsung Galaxy Buds4 heyrnartólin.

Galaxy Buds4 eru sögð þægileg í eyrun, með góð hljómgæði og virka umhverfisdempun(ANC) sem hentar vel í daglegu lífi.

Galaxy Buds4 Pro fara skrefinu lengra með enn dýpri og nákvæmari hljóm, öflugri umhverfisdempun og henta vel fyrir tónlistarunnendur sem gera miklar kröfur á góðan hljóm! Með þeim koma sílikon tappar sem auka þægindin ennþá meir.

Fullkomið par með nýju Galaxy S26 símunum.


Af hverju að velja nýju Galaxy S26 línuna

Öflug Galaxy AI sem einfaldar daglegt líf
Framúrskarandi myndavélar í öllum gerðum
120Hz AMOLED skjár með einstaklega mjúkri upplifun
Hugbúnaðarstuðningur til 7 ára
Hönnun og gæði sem standast kröfur framtíðarinnar

Samsung er ekki bara að kynna ný tæki heldur nýja nálgun þar sem gervigreind og afköst vinna saman til að gera lífið einfaldara.


Tilbúinn í uppfærslu

Hvort sem þú velur Galaxy S26, S26+ eða S26 Ultra færðu síma sem er hannaður til að endast og þróast með þér næstu árin.

Skoðaðu nýju Galaxy vörurnar og tryggðu þér tæki sem heldur í við framtíðina.