Eigandi Lune.is fór í viðtal í sunnudagsblaði Morgunblaðsins. Höfundur greinarinnar heitir Orri Páll Ormarsson. Í þessari færslu á Lune.is setjum við aðeins inn hvað var fjallað um.
Frá Grindavík til eigin fyrirtækis: Saga Lune
Þegar Grindavík var rýmd missti fjölskyldan heimili sitt og þurfti að hefja nýtt líf annars staðar. Skömmu síðar missti Gunnar Máni einnig vinnuna þegar kviknaði í Kringlunni þar sem hann starfaði. Á stuttum tíma breyttist lífið mikið og óvissan varð mikil.
Ákvörðun um að skapa eigin óvissu
Í stað þess að bíða eftir að hlutirnir breyttust ákvað Gunnar Máni að taka stjórn á aðstæðum sínum. Hann stofnaði Lune og hóf að byggja upp eigin rekstur með áherslu á tæknivörur, góða þjónustu og skýra framtíðarsýn.
Markmiðið var einfalt: að skapa fyrirtæki sem byggir á trausti, góðu vöruúrvali og persónulegri þjónustu.
Hröð uppbygging
Þrátt fyrir erfiðar aðstæður tók reksturinn fljótt við sér. Vefverslunin lune.is hefur vaxið hratt og úrvalið stækkað jafnt og þétt. Í dag eru um þúsund vörur í boði og viðskiptavinir víðs vegar að af landinu.
Janúar 2026 var stærsti mánuður okkar frá upphafi og staðfestir að eftirspurn eftir góðum tæknivörum og persónulegri þjónustu þó svo hún sé í gegnum netið, er mikil. Staðfestir einnig það að við erum ennþá í tröppu gangi upp á við því venjulega er Janúar ekki stærsti mánuður ársins...
Stuðningur sem skiptir máli
Í greininni kemur einnig fram að stuðningur fjölskyldu, vina og viðskiptavina hafi skipt sköpum í þessari vegferð. Með samstilltu átaki hefur tekist að byggja upp nýjan grunn eftir erfiða tíma.
Framtíðarsýn Lune
Framtíðarsýn Lune er að halda áfram að stækka vöruúrvalið, bæta þjónustuna og byggja upp sterkt íslenskt fyrirtæki á sviði tæknivara.
Sagan sýnir að stundum geta erfiðustu aðstæður orðið upphafið að nýjum tækifærum.
Smelltu hér til að sjá sýnishorn af greininni inn á mbl.is
Í sjálfu sunnudagsblaðinu var farið ítarlega í persónulegri hluti. En hér er aðeins ritað um það sem tengist