Brother QL-820NWBc Límmiðaprentari
Fyrirferðalítill og afkastamikill thermal merkimiðaprentari sem hentar einstaklega vel fyrir skrifstofur, lager, verslanir og móttökur. Hannaður fyrir hraða, sveigjanleika og faglega framsetningu með fjölbreyttum tengimöguleikum og sjálfvirkum skurðarbúnaði.
Frábær til prentunar á Dropp og Póst sendingarmiðum.
Helstu eiginleikar:
Fjölbreyttir tengimöguleikar: USB 2.0, Ethernet, Wi-Fi og Bluetooth. Styður PC, Mac og Linux ásamt AirPrint og MFi.
Prenthraði: Prentar allt að 110 merkimiða á mínútu fyrir skilvirka daglega notkun.
Prentupplausn: 300 x 600 dpi sem tryggir skýra og nákvæma prentun á texta, lógó og strikamerkjum.
Svart og rautt prent: Styður prentun í svörtu og rauðu á sérhæfðar DK rúllur án bleks eða tóner.
Allt að 62 mm breidd: Prentar á forskorna DK merkimiða og samfelldar rúllur allt að 62 mm breidd.
Sérsniðin lengd: Með innbyggðum sjálfvirkum hníf er hægt að prenta merkimiða í nákvæmri og sérstilltri lengd.
Sjálfhreinsandi prenthaus: Viðheldur prentgæðum og eykur áreiðanleika í langvarandi notkun.
LCD skjár: Innbyggður baklýstur skjár sem auðveldar uppsetningu og notkun.
Sjálfstæð notkun: Hægt að vista og prenta merki úr minni tækisins án tengingar við tölvu.
Fyrir sendingar og gestamerki: Hentar vel til að prenta Dropp sendingarmiða, styður 11 x 6 lóðrétta prentun hjá Póstinum og er einnig hentugur fyrir gestakort og aðrar merkingar.
Innihald í kassa: USB kapall, spennubreytir, DK-11201 byrjunarrúlla (100 merki) og DK-22251 62 mm svart/rauð samfelld rúlla (5 metrar).
Brother QL-820NWBc er ein fullkomnasta lausnin í sínum flokki fyrir fyrirtæki sem þurfa hraða, sveigjanleika og faglega merkimiðaprentun í einu og sama tækinu.