Dyson V12 Detect Slim Absolute hand- og skaftryksuga
Dyson V12 Detect Slim Absolute er öflug og létt þráðlaus ryksuga sem auðveldar þrif á öllum heimilum. Grænt ljós á Fluffy Optic™ ryksuguhausnum lýsir upp rykagnir sem annars sjást illa á hörðum gólfum.
Snjöll rykskynjun: Innbyggður skynjari greinir magn og stærð rykagna og stillir sogkraftinn sjálfkrafa eftir þörfum. LCD-skjár sýnir niðurstöður þrifanna og hversu mikill notkunartími er eftir.
Öflug þrif: Dyson Hyperdymium™ mótorinn skilar allt að 150 AW sogkrafti. Motorbar™ hausinn hentar bæði teppum og hörðum gólfum og losar hár sjálfkrafa af burstanum.
Létt og þægileg: Nett hönnun og aðeins 2,2 kg þyngd gera ryksuguna lipra í notkun. Með fjölbreyttum fylgihlutum er auðvelt að þrífa gólf, húsgögn, þröng svæði og hár gæludýra.
Rafhlaða og hleðsla: Allt að 60 mínútna notkun á einni hleðslu. Hægt er að velja á milli þriggja kraftstillinga eftir umfangi þrifanna.
-
Allt að 150 AW sogkraftur
-
Allt að 60 mín. rafhlöðuending
-
Fluffy Optic™ haus með grænu ljósi
-
Motorbar™ haus sem losar flækt hár
-
Sjálfvirk stilling á sogkrafti
-
LCD-skjár með upplýsingum í rauntíma
-
Þrjár kraftstillingar
-
0,35 lítra rykhólf
-
Þyngd: 2,2 kg
-
Hleðslutími: um 4 klst.