Garmin CIRQA L/XL
Garmin CIRQA er nett og þægilegt heilsuband án skjás sem fylgist með heilsu, svefni og hreyfingu allan sólarhringinn. Þar sem bandið er skjálaust færðu engar óþarfa tilkynningar eða truflanir. Allar upplýsingar birtast á skýran hátt í Garmin Connect appinu og engin áskrift er nauðsynleg fyrir helstu eiginleikana.
Helstu eiginleikar
-
Skjálaus hönnun: Enginn skjár eða stöðugar tilkynningar. Bandið safnar gögnum í bakgrunni svo þú getur skoðað þau síðar í Garmin Connect.
-
Hjartsláttur: Mælir hjartslátt allan sólarhringinn og getur látið vita ef hann mælist óvenjulega hár eða lágur.
-
Svefnmælingar: Greinir svefnstig, lúra, öndun, HRV og svefnvenjur og gefur þér svefnstig og persónulegar upplýsingar.
-
Body Battery: Metur orkustig líkamans út frá hreyfingu, streitu, svefni og bata.
-
Training Readiness: Hjálpar þér að sjá hvort líkaminn sé tilbúinn í erfiða æfingu eða hvort betra sé að taka rólegan dag.
-
Heilsumælingar: Fylgist meðal annars með streitu, súrefnismettun, húðhita, öndun og heilsustöðu.
-
Hreyfing: Styður skráningu á meira en 80 tegundum æfinga og getur greint margar daglegar athafnir sjálfkrafa.
-
Garmin Connect: Samstillir allar heilsu og hreyfiupplýsingar við Garmin Connect appið fyrir iPhone og Android.
-
Engin áskrift: Helstu heilsu, svefn og hreyfieiginleikar eru aðgengilegir án mánaðarlegrar áskriftar.
-
Púlsdeiling: Getur sent hjartsláttargögn í rauntíma til samhæfra Garmin tækja, þar á meðal Edge hjólatölva.
-
Staðsetning: Notar GPS tengingu samhæfs snjallsíma til að skrá leiðir og vegalengdir utandyra.
-
Rafhlaða: Allt að 10 daga rafhlöðuending á einni hleðslu.
-
Vatnsvörn: 5 ATM vörn sem hentar fyrir daglega notkun, sturtu og sund.
-
Hönnun: Létt eining úr trefjastyrktu fjölliðuefni ásamt mjúkri ComfortFit efnisól.
-
Þyngd: 21,2 grömm í L/XL stærð.
-
Stærðir: L/XL passar úlnliðum sem eru 145 til 240 mm.
-
Litir: Black, Citron Gray, Mauve, French Gray, Dark Olive, Captain Blue og French Blue.
Garmin CIRQA Smart Band er frábær kostur fyrir þá sem vilja nákvæmar heilsu og hreyfiupplýsingar án þess að vera með annan skjá á úlnliðnum. Létt hönnun, löng rafhlöðuending og engin áskrift gera bandið hentugt til notkunar allan sólarhringinn.