Samsung Galaxy Watch Ultra 47mm LTE - Titanium Silver (2025)
Harðgert snjallúr fyrir þau kröfuhörðu
Samsung Galaxy Watch Ultra sameinar endingargóða hönnun og öfluga snjallvirkni í úri sem er hannað fyrir þá sem setja kröfur um nákvæmni, úthald og tækni í fyrsta sæti. Hvort sem þú ert í fjallgöngu, hlaupi, sundi eða vinnu, heldur Watch Ultra utan um heilsu þína og afköst með nákvæmni.
Helstu eiginleikar:
-
Öflug hönnun: Rammi úr títaníum og safírgler – vatnsvarið upp í 10 ATM og IP68 vottun
-
Skjár: 1,5 tommu Super AMOLED með háum birtustyrk og skýrleika, einnig sýnilegur í sterkri birtu
-
Rafhlaða: Allt að 100 klukkustunda rafhlöðuending í venjulegri notkun – allt að 48 klukkustundir í miklu álagi
-
Tenging: Fullkomin LTE stuðningur – þú getur hringt, sent skilaboð og streymt tónlist án þess að hafa símann með
-
Nákvæm heilsumæling: Mælir hjartslátt, svefn, streitu, súrefnismettun og blóðþrýsting
-
Íþróttastillingar: Greinir sjálfkrafa hvernig þú hreyfir þig og býður upp á leiðsögn í hlaupum og öðrum æfingum
-
Stýrikerfi: Wear OS frá Google í samstarfi við Samsung, styður Google Maps, Gmail, YouTube Music, Spotify og fleira
-
GPS og leiðsögn: Nákvæm staðsetning og leiðarskráning með tvöföldu GPS fyrir ævintýri utandyra
-
Öryggi: Fallgreining og neyðarkall virkjast ef notandi dettur eða lendir í vandræðum
-
Innra minni: 64 GB geymsla og 2 GB vinnsluminni
Hentar sérlega vel fyrir:
-
Ævintýra- og íþróttafólk sem þurfa endingargott úr
-
Þau sem vilja nota snjallúr án síma
-
Einstaklinga sem er annt um heilsuna og vilja góðar mælingar og innsýn í líkamsástand
-
Notendur sem vilja sameina öfluga snjalltækni og vandaða, sterkbyggða hönnun