Apple Watch Series 12 LTE
Apple Watch Series 12 GPS + Cellular heldur þér tengdum þótt iPhone-síminn sé ekki með í för. Með farsímatengingu geturðu hringt, svarað skilaboðum, streymt tónlist og fengið tilkynningar beint í úrið – tilvalið fyrir æfingar, útiveru og annasama daga.
Nýtt heilsumælingakerfi fylgist meðal annars með hjartslætti, svefni, líkamshita og súrefnismettun í blóði. Úrið styður einnig hjartalínurit, svefneinkunn og tilkynningar um mögulegan kæfisvefn, óreglulegan hjartslátt og háþrýsting.
S11 örgjörvinn tryggir hraða og lipra notkun, en Always-On Retina skjárinn nær allt að 2.000 nit birtustigi og er auðlesinn við fjölbreyttar aðstæður. Rafhlaðan endist í allt að 24 klukkustundir við venjulega notkun og hraðhleðsla nær allt að 80% hleðslu á um 30 mínútum.
Veldu á milli 42 mm og 46 mm eftir því hvaða stærð hentar úlnliðnum og þínum stíl best.
Helstu upplýsingar
- GPS + Cellular með 5G RedCap og LTE
- Hægt að hringja, senda skilaboð og streyma án þess að hafa iPhone við höndina
- Fæst í 42 mm og 46 mm stærð
- Always-On Retina LTPO3 OLED skjár
- Allt að 2.000 nit birtustig
- Ceramic Shield 2 skjávörn
- S11 örgjörvi og 4 kjarna Neural Engine
- 64 GB geymsla
- Þriðju kynslóðar rafrænn hjartaskynjari
- Sívirkur optískur hjartaskynjari
- Hita- og súrefnismettunarskynjarar
- EKG, svefngreining og fjölbreyttar heilsumælingar
- Dýptarmælir niður á 6 metra og vatnshitaskynjari
- Nákvæmt GPS fyrir leiðir, hraða og vegalengdir
- Allt að 24 klukkustunda rafhlöðuending
- Allt að 38 klukkustundir í orkusparnaðarstillingu
- Allt að 80% hleðsla á um 30 mínútum
- Vatnsvarið niður á 50 metra og hentugt í sund
- IP6X rykvörn
- Fall- og árekstrargreining ásamt Neyðarkalli
- Wi-Fi, Bluetooth 5.3 og Apple Pay
- Stýring með Digital Crown og handahreyfingum
Stærðir
- 42 mm: 42 × 37 × 9,7 mm, 31,5 g
- 46 mm: 46 × 40 × 9,7 mm, 38,6 g