Apple Watch Series SE3 GPS
Apple Watch SE 3 sameinar heilsu-, öryggis- og æfingareiginleika Apple Watch á hagstæðu verði. Öflug S10-flaga tryggir lipra notkun og knýr Always-On Retina skjáinn, svo hægt er að sjá tímann, tilkynningar og æfingagögn án þess að lyfta úlnliðnum.
Innbyggðir hjartsláttar- og hitaskynjarar veita gagnlega innsýn í heilsu, svefn og tíðahring. Úrið fylgist með svefnstigum, reiknar svefneinkunn og getur sent tilkynningar um háan eða lágan hjartslátt, óreglulegan hjartslátt og mögulegan kæfisvefn.
Nákvæmt GPS skráir hraða, vegalengd og leið við hlaup, göngur og hjólreiðar. Úrið býður einnig upp á fjölbreyttar æfingastillingar, fall- og árekstrargreiningu ásamt Neyðarkalli. Rafhlaðan endist í allt að 18 klukkustundir og hraðhleðsla nær allt að 80% á um 45 mínútum.
-
Fæst í 40 mm og 44 mm stærð
-
S10-flaga með tvíkjarna örgjörva
-
Fjögurra kjarna Neural Engine
-
64 GB geymsla
-
Always-On Retina OLED LTPO skjár
-
Allt að 1.000 nit birtustig
-
Ion‑X gler með aukinni höggvörn
-
Annarrar kynslóðar optískur hjartsláttarskynjari
-
Hitaskynjari fyrir úlnlið
-
Svefnstig og svefneinkunn
-
Tilkynningar um óreglulegan hjartslátt og mögulegan kæfisvefn
-
Nákvæmt GPS og sívirkur hæðarmælir
-
Fjölbreyttar æfinga- og sundstillingar
-
Dobbeltap og úlnliðshreyfingar til stýringar
-
Fallgreining og árekstrargreining
-
Neyðarkall
-
Vatnsvarið niður á 50 metra
-
Allt að 18 klst. rafhlöðuending
-
Allt að 32 klst. í orkusparnaðarstillingu
-
Allt að 80% hleðsla á um 45 mínútum
-
Wi‑Fi, Bluetooth 5.3 og Apple Pay