Garmin Púlsmælir – HRM 600 – M/XL
Þessi púlsmælir sendir gögn í rauntíma í gegnum ANT+® eða Bluetooth®. Talar við samhæf Garmin tæki eða forrit frá þriðja aðila eins og Tacx Training.
Púlsmælirinn er með innbyggðri hlaupagreiningu sem að inniheldur hraðatap í skrefi, lóðrétta hreyfingu, snertitíma við jörðu og jafnvægi (þarfnast samhæfs snjallúrs).
HRM 600 mælir daglega hreyfingu eins og skref, púls, kaloríur og æfingamínútur. Allt þetta sendir mælirinn í Garmin Connect.
Ef þú ert að hlaupa innandyra á braut eða bretti sendir HRM 600 hraða og vegalengd í samhæft snjallúr². Í sundi geymir hann púlsmælingar og sendir þær yfir í samhæft snjallúr þegar sundæfingin er vistuð.
HRM 600 er með LED stöðuljósi sem lætur þig vita þegar það er kveikt á honum eða þegar rafhlaðan er að tæmast. Með takkanum er auðvelt að para mælinn. Einnig er hann með 5 ATM vatnsvörn.
Hægt að skoða hérna hvaða úr styðja HRM 600
https://support.garmin.com/en-US/?faq=0E1YeQaTMi7mouMk5XT5w6