MacBook Air 15" M5 - Íslenskt lyklaborð
MacBook Air 15" með M5 örgjörva sameinar kraft, stærri skjá og ótrúlega létta hönnun. Hún er fullkomin fyrir þá sem vilja meira vinnupláss á skjánum án þess að fórna færanleika eða rafhlöðuendingu. Hentar jafnt fyrir vinnu, nám og skapandi verkefni.
Helstu eiginleikar
Öflugur M5 örgjörvi:
Apple M5 örgjörvi með 10 kjarna CPU og 10 kjarna GPU sem skilar hraðri og skilvirkri vinnslu, hvort sem er í fjölverka vinnu, myndvinnslu eða í daglegri notkun
15,3" Liquid Retina skjár:
Stór og skýr skjár með 2880 x 1864 upplausn, P3 litrófi og allt að 500 nit birtu fyrir líflega og nákvæma mynd
Allt að 18 klst rafhlöðuending:
Frábær rafhlöðuending sem endist allan daginn við vinnu eða afþreyingu
Létt og þunn hönnun:
Aðeins um 1,5 kg og einstaklega þunn sem gerir hana auðvelda í flutningi þrátt fyrir stærri skjá
Sameinað vinnsluminni:
16 GB vinnsluminni sem hægt er að uppfæra í 24 GB eða 32 GB fyrir meiri afköst
Hraður SSD diskur:
512 GB SSD sem grunnur með möguleika á allt að 4 TB geymsluplássi
12 MP myndavél og öflugt hljóð:
Center Stage myndavél, sex hátalarar með Dolby Atmos og þrír hljóðnemar fyrir skýra upplifun
Wi-Fi 7 og nýjustu tengimöguleikar:
Hraðari nettenging og nútímaleg tengi eins og Thunderbolt og MagSafe