Samsung Galaxy Tab S11 Ultra 14.6" 5G 256GB/12GB
Samsung Galaxy Tab S11 Ultra er hönnuð fyrir þá sem vilja stóran skjá, öflug afköst og sveigjanlegt vinnuumhverfi hvar sem er. Glæsilegi 14,6" Dynamic AMOLED 2X skjárinn gefur þér gott rými fyrir vinnu, nám, sköpun og afþreyingu. Með 5G tengingu, Galaxy AI, Samsung DeX og meðfylgjandi S Pen er auðvelt að halda áfram að skapa og vinna á ferðinni.
Helstu eiginleikar
Skjár: 14,6" Dynamic AMOLED 2X skjár með 2960 × 1848 upplausn, allt að 120 Hz endurnýjunartíðni og allt að 1.600 nit birtustigi.
Örgjörvi: MediaTek Dimensity 9400+ sem skilar öflugum afköstum fyrir fjölverkavinnslu, sköpun, afþreyingu og AI eiginleika.
Minni og geymsla: 12GB vinnsluminni og 256GB geymslupláss fyrir öpp, myndir, myndbönd og skjöl.
Stækkanleg geymsla: Stuðningur við microSD minniskort með allt að 2TB viðbótargeymslu.
5G tenging: Hraðvirk farsímatenging með stuðningi við SIM kort og eSIM svo þú getur unnið og streymt án þess að vera háður WiFi.
Myndavélar: Tvöföld 13 MP og 8 MP myndavél að aftan ásamt 12 MP frammyndavél fyrir myndsímtöl og myndatökur.
Myndbandsupptaka: Upptaka í allt að 4K upplausn við 30 ramma á sekúndu.
Rafhlaða: Stór 11.600 mAh rafhlaða sem styður allt að 23 klukkustunda myndbandsáhorf.
S Pen: Meðfylgjandi S Pen gerir auðvelt að skrifa glósur, teikna, merkja skjöl og vinna nákvæmlega á skjánum.
Galaxy AI: Snjallir eiginleikar aðstoða við textavinnu, glósur, leit, teikningar og dagleg verkefni.
Samsung DeX: Breytir spjaldtölvunni í sveigjanlegt vinnuumhverfi með gluggum og allt að fjórum aðskildum vinnusvæðum.
Hönnun: Aðeins 5,1 mm þunn og vegur 695 grömm þrátt fyrir stóran skjá og öfluga rafhlöðu.
Ending: Armor Aluminum rammi ásamt IP68 vörn gegn vatni og ryki. Meðfylgjandi S Pen er einnig IP68 vottaður.
Litir: Grey og Silver.
Samsung Galaxy Tab S11 Ultra 5G er frábær kostur fyrir þá sem vilja öfluga spjaldtölvu með stórum skjá, hraðri farsímatengingu og snjöllum eiginleikum fyrir vinnu, nám og afþreyingu.