Soundboks Rider
SOUNDBOKS Rider sameinar kraftmikinn partýhljóm og meðfærilega hönnun. Þrátt fyrir nett snið nær hátalarinn allt að 118 dB hljóðstyrk og skilar skýrum hljómi með kröftugum bassa – hvort sem ferðinni er heitið í garðinn, útileguna eða næsta partý.
Innbyggt handfang og aðeins 6,5 kg þyngd gera Rider auðveldan í flutningi. Sterkbyggt húsið, höggdeyfandi sílikonhornin og IP66-vörn gegn ryki og vatni gera hátalarann vel undirbúinn fyrir íslenskt veður og fjörugt ferðalag.
Útskiptanlega SOUNDBOKS rafhlaðan endist í allt að 35 klukkustundir við miðlungsstyrk eða allt að 8 klukkustundir í botni. Í SOUNDBOKS appinu má velja á milli Bass+, Outdoor og Indoor hljóðstillinga, stilla tónjafnara og vista eigin hljóðprófíla.
-
Allt að 118 dB hljóðstyrkur
-
8" bassakeila og 1,2" diskant
-
Tíðnisvið: 40 Hz–20 kHz
-
Soundboks Adaptive Bass Enhancer DSP
-
Tvöfaldir Class-D magnarar frá Texas Instruments
-
Þrjár hljóðstillingar: Bass+, Outdoor og Indoor
-
Sérstillanlegur tónjafnari í SOUNDBOKS appinu
-
Bluetooth 4.2
-
3,5 mm AUX-tengi
-
Allt að 35 klst. rafhlöðuending við miðlungsstyrk
-
Allt að 8 klst. rafhlöðuending á hámarksstyrk
-
Útskiptanleg 99,84 Wh LiFePO4 rafhlaða fylgir
-
Full hleðsla á um tveimur klukkustundum með The Charger
-
IP66 ryk- og vatnsvörn
-
Höggdeyfandi sílikonhorn
-
Laustakanlegt stálgrill
-
Innbyggt burðarhandfang
-
Festing fyrir aukabúnað og burðaról
-
Stærð: 35 × 24 × 20 cm
-
Þyngd: 6,5 kg
Aflgjafi fylgir ekki og SOUNDBOKS The Charger er seldur sér.