Skilmálar
Eignarréttur
Í samræmi við 42. gr. laga nr. 75/1997 áskilur Lune verslun ehf., kt. 410724-1700 (hér eftir nefndur söluaðili / þjónustuaðili) (vsk nr: 153532) sér eignarrétt hins selda þar til kaupverðið er að fullu greitt og áskilur sér rétt til að taka hið selda til baka eða selja það nauðungarsölu með vísan til 4. tl. 38. gr. sömu laga. Kaupandi hefur kynnt sér samningsákvæði þetta og samþykkir eignarréttarfyrirvara söluaðila með móttöku hins selda.
Skilaréttur
Heimilt er að skila vöru innan 14 daga frá kaupdagsetningu, nema að annað sé tilgreint, sé varan í órofnum og upprunalegum umbúðum og innsigli hennar órofin. Við vöruskil skal sölukvittun framvísað. Skilaréttur á ekki við um útsöluvörur eða notaðar vörur. Við vöruskil er ávallt miðað við endanlegt söluverð á upphaflegum reikning. Falli vara undir skilarétt hefur viðskiptavinur val um að fá inneign eða endurgreiðslu nema að annað sé tilgreint. Sama gildir um vöruskil, þá er miðað við dagsetningu á póstlagningu vörunnar til Takkland ehf. frá viðskiptavin. Netfangið vefverslun@lune.is meðhöndlar öll samskipti í sölu og vöruskilum.
Skilaréttur í vefverslun
Heimilt er að skila vöru keypta í vefverslun án þess að tilgreina ástæðu og hefur kaupandi 14 daga frá afhendingu vöru til að tilkynna fyrirætluð skil. Af lýðheilsusjónarmiðum og hreinlætisástæðum er ekki hægt að skila eftirtöldum vörum ef innsigli hafa verið rofin eða upprunalegar umbúðir opnaðar: AirPods, AirPods Pro, AirPods Max. Miðað er við afhendingadagsetningu þess aðila sem sá um lokaafhendingu vörunnar í hendur kaupanda. Til þess að nýta þennan rétt þarf kaupandi að skila inn ótvíræðri yfirlýsingu í tölvupósti senda á vefverslun@macland.is eða að fylla út þar til gert eyðublað - Sjá hér.
Áhrif þess að falla frá samningi
Kjósi kaupandi að falla frá samningi um kaup á vöru í vefverslun er vara endurgreidd að fullu, ásamt kostnaði við afhendingu (að undanskildum viðbótarkostnaði ef kaupandi valdi annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða afhendingarmáta sem seljandi býður upp á). Endurgreiðsla er framkvæmd með sama greiðslumiðli og kaupandi notaði í upphaflegu viðskiptunum. Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar en eigi síðar en 14 dögum eftir að ótvíræð tilkynning um að falla frá samning berst. Seljandi áskilur sér þó þann rétt að framkvæma ekki endurgreiðslu fyrr en vöru hefur verið sannarlega skilað.
Kaupandi er ábyrgur fyrir rýrnun á verðgildi vörunnar sem stafar af meðferð annarri en þeirri sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni vöru.
Kaupandi er ábyrgur fyrir skilum á vörunni og kostnaði við skilum á henni. Kaupandi hefur allt að 14 daga frá dagsetningu ótvíræðrar tilkynningar til að koma vörunni í hendur seljanda. Kaupandi getur skilað vöru í verslun á opnunartíma verslunar eða kosið að endursenda vöruna með viðurkenndum póstsendingaraðilum.
Ábyrgðarskilmálar
Reikningur fyrir selda vöru og/eða þjónustu gildir sem ábyrgðarskírteini og hefst ábyrgðartími þegar búnaður og/eða þjónusta er innt af hendi/afhentur, eða við dagsetningu reiknings, hvort sem fyrr er. Framvísa skal, eftir bestu getu, reikning til staðfestingar ábyrgðar.
Ábyrgðarskilmálarnir í þessari yfirlýsingu, að því leyti sem lög leyfa, undanskilja ekki, takmarka eða breyta heldur eru til viðbótar lögbundnum réttindum sem gilda um sölu viðkomandi vöru. Ef um er að ræða sölu til fyrirtækis er tímamark til að bera fyrir sig galla á seldri vöru frá söluaðila 1 ár frá því að söluhlut var veitt viðtöku nema annað sé sérstaklega tekið fram. Í samræmi við lög um neytendakaup, nr. 48/2003 er þessi frestur tvö ár ef um er að ræða smásölu til neytenda.
Ábyrgð gildir einungis fyrir vélbúnað. Við ábyrgðarviðgerðir geta verið notaðir íhlutir úr öðrum vörum sambærilegir við nýja eða sem hafa verið í óverulegri notkun. Söluaðili hefur heimild til þess að endurgreiða gallaða vöru í stað þess að framkvæma viðgerð eða útskipti á vörunni. Söluaðili undanskilur sig allri ábyrgð á afleiddu tjóni sem leiða kann af bilun, svo sem endurvinnslu gagna, töpuðum hagnaði oþh. Notendur eru í öllum tilfellum ábyrgir fyrir öryggisafritun gagna. Hugbúnaður er seldur í núverandi ástandi án tilkalls til endurbóta og breytinga sem hugsanlega verða gerðar á honum, ekki undir neinum kringumstæðum verður söluaðili ábyrgur fyrir skaða sem notkun hugbúnaðarins kann að valda.
Ábyrgð tryggir ekki að búnaður verði laus við allar truflanir eða villulaus. Á líftíma vörunnar mun reynast nauðsynlegt að fylgja leiðbeiningum framleiðanda um uppfærslur. Ef úrlausn vandamáls felst í því að fylgja leiðbeiningum framleiðanda sem aðgengilegar eru almenningi mun vinna vegna þess ekki falla undir ábyrgð og er þá innheimt samkvæmt gjaldskrá.
Notuðum búnaði fylgir ekki ábyrgð, nema það sé sérstaklega tilgreint.
Ábyrgð á vélbúnaði fellur niður, ef:
- Leiðbeiningum framleiðanda búnaðar og/eða söluaðila um hirðu, notkun, álag, íhluti eða viðhald er ekki fylgt.
- Bilun má rekja til illrar eða rangrar meðferðar.
- Óviðkomandi aðili hefur opnað eða átt við búnað, breytt honum eða bætt við hann á einhvern hátt.
- Bilun má rekja til þess að vélbúnaður hafi verið tengdur við ranga rafspennu.
- Bilun stafar af rangri tengingu við rafkerfi eða netkerfi.
- Bilun má rekja til óhæfra umhverfisþátta, svo sem ryks, hita- eða rakastigs.
- Sé „Activation lock“ virkur á tæki og ekki afvirkjaður af hendi kaupanda við beiðni um skoðun vegna ábyrgðar og / eða galla.
Ábyrgð er ekki veitt á:
- Búnaði, sem er skemmdur vegna rangrar notkunar, ytri ástæðna, rangra breytinga, rangs uppsetningarumhverfis eða skorts á eðlilegri þjónustu.
- Búnaðar, þar sem auðkenni framleiðanda og raðnúmer hefur verið afmáð.
- Galla, sem stafar af búnaði, er söluaðili ber ekki ábyrgð á.
- Þjónustu við ranglega útfærðar búnaðarbreytingar.
- Gögnum notenda.
- Forritum og/eða hugbúnaði vöru utan stýrikerfis vöru.
Söluaðili undanskilur sig allri ábyrgð á afleiddu tjóni sem leiða kann af hverskonar bilun vöru, svo sem endurvinnslu gagna, töpuðum hagnaði eða öðru tapi.